Álfagarðurinn
  • Home
  • Álfagöngur
  • Um Álfagarðinn
  • Álfabókin
  • Álfaúttektir
Picture
Picture

English

Picture

Álfabókin fór í búðir 12.12.12

Picture
 „Álfheimar Hellisgerðis – leiðsögn um hulda heima“ eftir Ragnhildi Jónsdóttur sjáanda, ásamt huldukonunni Púldu og álfkonunni Ömbu fór í búðir 12.12.12. Hún fjallar um hina fjölbreyttu tegundir náttúruvera í Hellisgerði. Bókin er byggð á göngu á vegum Álfagarðsins sem farin er um garðinn. Þarna er gefin einstök sýn í heim sem er flestum okkar hulinn. Við fáum að kynnast daglegu lífi í álfheimum og gægjast inn í samfélag náttúruveranna. Bókin er ríkulega myndskreytt af  Sirrý Margréti Lárusdóttur. Álfagarðurinn er opin frá 13.00 - 18.00. allar helgar fram að jólum. Þeir sem hafa áhuga á að kaupa bókina geta gert það í Álfagarðinum, öllum helstu bókaverslunum og einso er hægt að panta beint frá okkur á alfar@alfagardurinn.is og í síma 694 3153.

Álfagarðurinn er opinn um aðventuna 
 

Picture
Álfagarðurinn verður opinn um allar helgar á aðventunni frá kl 13.00 - 18.00 og á Þorláksmessu til kl. 22.00 
Við bjóðum upp á kyrrláta og ljúfa  stemmningu í jólaösinni með náttúruverunum í Hellisgerði  og  í litla notalega húsinu þar sem hægt er að gæða sér á lífrænu huldufólkskaffi, álfate,heitu dvergasúkkulaði og lostætum lífrænum hollustubitum. Álfagarðurinn býður upp á fjölbreytt úrval listmuna,listaverka, álfabækur, gjafabréf og skemmtilegar gjafakörfur sem eru tilvaldar jólagjafir. Það er aðeins nokkurra mínutna gangur frá Jólaþorpinu á Strandgötu í Álfagarðinn.  

Listalíf í Hellisgerði 29 júlí 

Picture
Listamenn ætla að  vinna að list sinni í Hellisgerði sunnudaginn 29 júlí frá kl 13.00. Þeir verða við litla álfahúsið og á fallegum stöðum um allan garð. Við viljum hvetja alla til að koma með börnin og barnabörnin í Hellisgerði og upplifa skemmtilegt listalíf og
listafólk.   

Föstum álfagöngum í sumar  lýkur á Verslunarmannahelgi

Aðeins 3 opnar laugardagsÁlfagöngur á íslensku eftir í sumar. 
Í dag; 21. júlí, 
28. júlí og
4. ágúst. 
Hefst klukkan 13.00 við Álfagarðinn í litla húsinu :-) 
Létt ganga með álfaleiðsögn ca klukkutími
1.500,- og frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum :-)
Sjáumst! 

Það er alltaf hægt að panta álfagöngu fyrir minni og stærri hópa á öðrum tímum.

Miklir kraftar í Álfagarðinum í gær

Picture
í 

Litla álfahátíðin í Álfagarðinum 

Picture
Um helgina verða dásamlegir dagar í öllum heimum Hellisgerðis. Þá stendur yfir stærsta hátíð álfanna: Sumarsólstöðuhátíðin Hátíð Lífsins.

Í tilefni af því heldur Álfagarðurinn, Litlu álfahátíðina, næsta sunnudag 24. júní fyrir alla fjölskylduna klukkan 14.00. Það verður boðið upp á stutta kyrrðar og Ljósbænastund við Álfakirkjuna hjá gosbrunninum. Lifandi tónlist og fróðleikur um Álfaheima og fegurð náttúrunnar á sviðinu. Listamenn verða að störfum hér og þar í Hellisgerði og verk þeirra til sýnis og sölu í Álfagarðinum.


Álfagarðurinn verður lokaður laugardaginn 16. júní vegna brúðkaups :-)
Hellisgerði sjálft er samt auðvitað 

alltaf opið :-) 

Rætt um bókina hans Fróða á Stöð 2

Picture
Á sjómannadaginn var skemmtileg frétt og viðtal við Ragnhildi á Stöð 2. um álfabókina hans Fróða. Smellið á myndina til að sjá fréttina og viðtalið.

Kynning á álfabókinni hans Fróða

Picture
Fimmtudaginn 31 maí kl:20.00 mun Ragnhildur Jónsdóttir, sjáandi,  lesa  úr  bókinni "Hvað þarf til að sjá álf" eftir álfinn Fróða sem býr í Hellisgerði. Þetta er fyrsta bókin eftir álf sem gefin er út í mannheimum, eftir því sem best er vitað. Í bókinni eru myndir eftir Ragnhildi sem skráði bókina eftir Fróða.
Bókin  veitir leiðbeiningar um það hvernig við mennirnir getum aftur náð sambandi við álfaheiminn. Hún býr yfir djúpri meiningu og dularkrafti.
Komið verður saman við Álfagarðinn í Hellisgerði og gengið saman á staðinn. Allir eru velkomnir. 

Rætt um álfa og Álfagarðinn hjá Siggu Lund

Picture
Sigga Lund sem er með vefsíðuna siggalund.is kom í heimsókn í Álfagarðinn í vikunni og tók viðtal við Ragnhildi um álfaflutningana til Vestmannaeyja, álfana í Hellisgerði og Álfabókina hans Fróða. 

Álfaflutningur til Eyja - Öll sagan

Picture
Fyrir nokkrum árum lenti Árni Johnsen í því að missa bíl sinn út af í hálku við Sandskeið og fara fimm veltur. Bíllinn stoppaði rétt hjá steini sem honum fannst vera álfasteinn og að verur steinsins hefðu bjargað lífi hans, því hann meiddist ekkert í slysinu þó að bíllinn færi illa. Þegar Árni frétti að þessi steinn myndi verða uppfylling fyrir nýja þjóðveginn, lét hann færa steininn til hliðar. Öll sagan hér í máli og myndum

Álfabókin er komin út

Picture
Álfagarðurinn hefur gefið út bók eftir álfinn Fróða, sem býr í Hellisgerði, sem heitir "Hvað þarf til að sjá álf"



Í bókinni eru einnig myndir eftir Ragnhildi Jónsdóttur, sem skráði bókina eftir Fróða.

Bókin "Hvað þarf til að sjá álf?" er fyrsta bókin eftir álf sem gefin er út í mannheimum, eftir því sem við vitum til.
Hún veitir leiðbeiningar um það hvernig við mennirnir getum aftur náð sambandi við álfaheiminn. Þessa bók þarf að lesa rólega og með fullri athygli. Hún býr nefnilega yfir dýpri meiningu og dularkrafti sem ekki sést við fyrstu sýn.




Þið finnið okkur í Hellisgerði sem er við Reykjavíkurveginn, sem liggur inn í bæinn frá gatnamótunum við Engidal (þar er farið inn í Hafnarfjörð, til Álftaness og til Keflavíkur), Best er að leggja bíl á bílastæði á horni Reykjavíkurvegar og Skúlaskeiðs eða við Hellisgötu. Ef farið er með strætó nr. 1 þá er farið út við Hellisgerði og gengið um 100 metra niður Reykjavíkurveginn. Inngangur er við Reykjavíkurveg, Skúlaskeið  og Hellisgötu.


Álfagarðurinn í Hellisgerði
sími 694-3153
alfar(hja)alfagardurinn.is


Álfagöngur 
 eftir pöntun
Create a free website with Weebly